Það bar til tíðinda að rússneska skákkonan Amina Abakarova er grunuð um að hafa eitrað fyrir keppinauti sínum Osmanovu á skákmóti. Helgi Ingólfsson kastaði fram limru: Hóflega heil er á geði. Heiður sinn lagði að veði
Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Það bar til tíðinda að rússneska skákkonan Amina Abakarova er grunuð um að hafa eitrað fyrir keppinauti sínum Osmanovu á skákmóti. Helgi Ingólfsson kastaði fram limru:
Hóflega heil er á geði.
Heiður sinn lagði að veði.
Í skák átti hún törn
með trylltustu vörn
og tefldi fram eitruðu peði.
Philip Vogler bætti við:
Lærði pent af Pútín menn
og peð að eitra vel.
Í dag þar tíðkast dráp slíkt enn
- ei dýrar keypti en sel.
Helgi svaraði að bragði:
Seint
...