— Morgunblaðið/KHJ

Fátt þykir nú minna á bygginguna sem áður hýsti skóla St. Jósefssystra í Hafnarfirði og þekkt hefur verið undir heitinu Kató. Stórvirk vinnuvél sá um niðurrifið og tók það fremur skamman tíma að fjarlægja bygginguna. Nú sést aðeins í bert bergið þar sem áður hvíldi húsgrunnur.

Kató stóð árum saman autt og í mikilli niðurníðslu, íbúum í hverfinu til ama. Var m.a. búið að krota á útveggi, brjóta rúður og valda öðrum skemmdum. Svæðið nú er þó til mikillar fyrirmyndar og augljóst að verktaki leggur kapp á að halda reitnum snyrtilegum á meðan framkvæmdir standa yfir.

Fram kom hér í Morgunblaðinu í maí sl. að til stæði að reisa á lóðinni tvö einbýlishús og eitt keðjuhús sem í verða alls 15 íbúðir. Kató var reist á árunum 1937-38. khj@mbl.is