![Hlaup Kristófer Þorgrímsson, t.v., náði frábærum árangri.](/myndir/gagnasafn/2024/08/15/a067d89d-feb1-44c7-893c-fdd949b38a1f.jpg)
Hlaup Kristófer Þorgrímsson, t.v., náði frábærum árangri.
— Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Ríkjandi Íslandsmeistarinn Kristófer Þorgrímsson, úr FH, keppti sem gestur á Héraðsmóti HSK í 200 metra hlaupi í fyrradag. Hann kom í mark á 21,29 sekúndum og bætti þar með sinn besta tíma. Kristófer er því orðinn þriðji fljótasti 200 metra hlaupari Íslands frá upphafi. Einungis fyrrverandi Íslandsmethafinn í greininni, Jón Arnar Magnússon, og núverandi Íslandsmethafi, Kolbeinn Höður Gunnarsson úr FH, hafa náð betri tíma.