![Kúrsk-innrásin Úkraínskur bryndreki sést hér fara yfir landamæri Rússlands og Úkraínu í Súmí-héraði í gær.](/myndir/gagnasafn/2024/08/15/d14a6b96-0f3c-4a91-827b-847b75ad1cd6.jpg)
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í gær að úkraínskar hersveitir hefðu sótt lengra inn í Rússland í Kúrsk-héraði, en rúm vika er nú liðin frá því að Úkraínumenn hófu innrás sína í Kúrsk-hérað. Þá gerðu Úkraínumenn loftárás á fjóra herflugvelli í Rússlandi í fyrrinótt, og er það talin ein stærsta árás þeirra af þessu tagi á Rússland frá því að innrás Rússa hófst í febrúar 2022.
Selenskí sagði um hádegisbilið í gær að Úkraínuher hefði sótt fram um einn til tvo kílómetra á vissum stöðum víglínunnar frá því um morguninn, og bætti við að rúmlega hundrað rússneskir hermenn hefðu verið teknir til fanga í gær. Sagði Selenskí að það myndi flýta fyrir því að úkraínskir stríðsfangar gætu snúið heim frá Rússlandi.
Rússneska varnarmálaráðuneytið
...