Sláturhúsið Egilsstöðum Rask ★★★★· Agnieszka Sosnowska sýnir. Ljóð: Ingunn Snædal. Sýningarstjórar: Ragnhildur Ásvaldsdóttir & Wiola Ujazdowska. Sýningin stendur til 31. ágúst og er opin kl. 11-16 frá þriðjudegi til föstudags, kl. 13-16 laugardaga og sunnudaga.
![Einn veggur sýningarinnar Vetrarmyndir, dyr, landslag, sjálfsmyndir, maður með hund og brotið tré.](/myndir/gagnasafn/2024/08/15/bac2b457-458b-4367-b7e8-166a86a4fb6d.jpg)
Einn veggur sýningarinnar Vetrarmyndir, dyr, landslag, sjálfsmyndir, maður með hund og brotið tré.
— Ljósmyndir/Hlynur Helgason
Myndlist
Hlynur
Helgason
Pólsk-bandaríski ljósmyndarinn Agnieszka Sosowska sýnir um þessar mundir verk sín í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Sýningin, sem ber titilinn Rask, er unnin í samvinnu við ljóðskáldið Ingunni Snædal. Það sem fyrir augu ber er viðamikil röð svart-hvítra ljósmynda Agnieszku. Í einu horni salarins má heyra upplestur á ljóði sem Ingunn hefur samið við verk Agnieszku. Þau stemma á skemmtilegan hátt við myndirnar en hafa helst til lítil áhrif á heildarmynd sýningarinnar, eru helst til lágstemmd en áhorfendur eru hvattir til að njóta þeirra með því að setjast niður í horninu.
Agnieszka fæddist í Póllandi en flutti 15 ára til Bandaríkjanna þar sem hún lærði ljósmyndun í Boston. Hún hefur búið á Íslandi undanfarin fimmtán ár,
...