Guðmundur Kristinn Ásgrímsson fæddist í Reykjavík 10. janúar 1970. Hann lést í Taílandi 17. júlí 2024.

Foreldrar hans eru Ásgrímur Þór Ásgrímsson og Oddný Guðfinna Guðmundsdóttir. Guðmundur Kristinn átti tvö systkini sammæðra: Hallgrím Þór Harðarson, f. 1973, og Hugrúnu Sif Harðardóttur, f. 1977. Faðir þeirra er Hörður S. Hallgrímsson. Þá átti hann þrjú systkini samfeðra: Guðrúnu Mörtu, f. 1970, Sigmar Torfa, f. 1971, og Jóhönnu Þórunni, f. 1983. Móðir þeirra er Marta Kristín Sigmarsdóttir.

Guðmundur ólst upp í Árbænum og í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík. Hann ferðaðist mikið um heiminn.

Útförin fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 15. ágúst 2024, klukkan 13.

Elsku Gummi bróðir.

Mínar kærustu minningar af

...