![Pílukast Stjórn húsfélagsins segir hljóðmælingar hafi verið gerðar.](/myndir/gagnasafn/2024/08/15/356f29d8-a2a4-4d6c-b6d7-1c522f825a9a.jpg)
Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
Stjórn húsfélagsins að Kolagötu 1-3 í Reykjavík mótmælir fullyrðingu framkvæmdastjóra pílustaðarins Skors, sem hann viðhafði nýverið í viðtali í Morgunblaðinu, um að íbúar hefðu hafnað hljóðmælingum í húsinu vegna starfsemi staðarins. Sakar hússtjórnin framkvæmdastjórann, Braga Ægisson, um rógburð í umræddu viðtali, sem birtist 27. júlí sl.
Segir stjórnin að hljóðmælingar hafi átt sér stað í minnst þremur íbúðum oftar en einu sinni ásamt fleiri upptökum frá hljóðmælingum. Íbúar og aðstandendur Skors hafa átt í deilum um starfsemina, eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu.
Stjórn húsfélagsins sendi blaðinu yfirlýsingu þar sem kemur m.a. fram að heilbrigðiseftirlitið hafi staðfest að það sé ónæði frá starfseminni og bent á að það sé óheppilegt að
...