![Geirsgata Unnið hefur verið að endurbótum í götunni undanfarnar vikur.](/myndir/gagnasafn/2024/08/15/25326909-eba3-4c8a-bfa2-dac1b2a41de7.jpg)
Fræsun og malbikun á Geirsgötu er lokið og næst verður hafist handa við gönguþverun götunnar við Reykjastræti.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að akstursstefnu í austur á Geirsgötu verður lokað um klukkan 10 fimmtudaginn 15. ágúst. Allri umferð í austur eftir Geirsgötu verður vísað á Hringbrautina eins og gert var í nokkra daga í júlí.
Sunnudaginn 18. ágúst verður norðurakrein svo lokað og unnið í henni. Um leið verður akstur til vesturs um suðurakreinina leyfður.
Kapp verður lagt á að ljúka verkinu fyrir menningarnótt. Veðrið gæti þó sett strik í reikninginn.
Gönguþverunin felst í því að fræsa burt núverandi malbik og leggja kantsteina sitthvorumegin til að lyfta göngufletinum sex sentimetra upp yfir malbikshæð götunnar. Snjóbræðsla verður lögð
...