Valur og Breiðablik mætast í bikarúrslitaleik kvenna í knattspyrnu á Laugardalsvelli annað kvöld. Liðin tvö hafa borið af á þessu tímabili og auk þess að mætast í úrslitum eru þau í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn, þar sem munar einu stigi.

Elísa Viðarsdóttir fyrirliði Vals og Ásta Eir Árnadóttir fyrirliði Breiðabliks búast báðar við hörkuviðureign í bikarúrslitum líkt og hefur verið tilfellið í tveimur leikjum liðanna í Bestu deildinni í sumar. » 63