Valur og Breiðablik mætast í úrslitaleik bikarkeppni kvenna í knattspyrnu, Mjólkurbikarnum, í stórleik tveggja bestu liða landsins á Laugardalsvelli annað kvöld. Breiðablik tekur þátt í sínum fjórða bikarúrslitaleik í röð en liðið hefur tapað…
![Fyrirliðar Elísa Viðarsdóttir fyrirliði Vals og Ásta Eir Árnadóttir fyrirliði Breiðabliks með bikarinn í gær.](/myndir/gagnasafn/2024/08/15/4a63a088-967a-4f18-ba7c-fd6f1a72488c.jpg)
Fyrirliðar Elísa Viðarsdóttir fyrirliði Vals og Ásta Eir Árnadóttir fyrirliði Breiðabliks með bikarinn í gær.
— Morgunblaðið/Eggert
Bikarkeppni
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Valur og Breiðablik mætast í úrslitaleik bikarkeppni kvenna í knattspyrnu, Mjólkurbikarnum, í stórleik tveggja bestu liða landsins á Laugardalsvelli annað kvöld. Breiðablik tekur þátt í sínum fjórða bikarúrslitaleik í röð en liðið hefur tapað síðustu tveimur úrslitaleikjum eftir að hafa orðið bikarmeistari árið 2021.
Valur er ríkjandi Íslandsmeistari auk þess að vera á toppi Bestu deildarinnar sem stendur. Breiðablik er þar í öðru sæti, einu stigi á eftir Val og toppbaráttan því í algleymingi.
Liðin mættust síðast í bikarúrslitaleik árið 2022 þegar Valur hafði betur, 2:1. Blikar eiga því harma að hefna. Á morgun mætast liðin í úrslitaleik bikarkeppninnar í tíunda sinn.
...