Körfuknattleikskonan Daniela Wallen leikur ekki áfram með Keflavík á næstu leiktíð, en hún hefur verið einn besti leikmaður kvennaliðs félagsins undanfarin fimm tímabil. Keflavík kvaddi leikmanninn á Facebook í gær og þakkaði henni innilega fyrir vel unnin störf, innan sem utan vallar, undanfarin ár. Á fimm tímabilum skoraði hún 21,2 stig, tók 13,3 fráköst og gaf 4,7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Átti hún sinn þátt í að Keflavík vann þrefalt á síðustu leiktíð og varð deildar-, bikar- og Íslandsmeistari.

Kylian Mbappé var á skotskónum fyrir Real Madrid þegar liðið hafði betur gegn Atalanta í Meistarabikar Evrópu í Varsjá í Póllandi á miðvikudagskvöldið síðasta. Þetta var fyrsta mark Mbappés fyrir Real Madrid síðan hann gekk til liðs við félagið frá París SG fyrr í sumar en Federico Valverde var einnig á skotskónum fyrir spænska liðið. Í Meistarabikar

...