Hörður Jón Fossberg, upphaflega Hörður Pétursson, fæddist 7. mars 1931. Hann lést 10. ágúst 2024 á Landspítalanum eftir einnar viku veikindi.

Hörður fæddist á Ránargötu 10 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Sveinbjörg Sigfúsdóttir, f. árið 1900, uppalin í Reykjavík, og að því er allir héldu Pétur Hoffmann Salómonsson frá Drápuhlíð í Helgafellssveit, f. 1897. Systkini Harðar sem komust á legg voru Margrét, Gunnar, Pétur, Elín, Nanna, Margot og Svava. Þau eru öll látin.

Eftirlifandi eiginkona Harðar er Helga Sigurðardóttir, f. 1933. Fyrri eiginkona Harðar var Birna Björnsdóttir, f. 1927, d. 2005, og barnsmóðir á undan henni var Sigríður Brynjólfsdóttir, f. 1929, d. 2000. Hörður eignaðist fjögur börn. Elstur er Hörður Fossberg, f. 1953. Hann er kvæntur Maríu Guðnýju Guðnadóttur. Þá kemur Sigurður Pétur, f. 1955. Kona hans er Kristjana

...