Uppgjör Róbert Wessman, forstjóri og stjórnarformaður Alvotech.
Uppgjör Róbert Wessman, forstjóri og stjórnarformaður Alvotech. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Rekstrarhagnaður Alvotech nam á fyrri helmingi ársins rúmlega 43 milljónum bandaríkjadala, samanborið við tap upp á 189 milljónir dala á sama tímabili í fyrra. Heildartekjur voru 236 milljónir dala á fyrri helmingi ársins, sem er meira en tíföldun frá sama tímabili í fyrra.

Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Alvotech sem birt var eftir lokun markaða í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Þar kemur fram að tekjur af vörusölu á fyrri helmingi ársins jukust um 190% frá sama tímabili í fyrra, í 66 milljónir dala, en þar af voru tekjur á öðrum fjórðungi 53 milljónir dala. Áfangagreiðslur og aðrar tekjur á fyrri árshelmingi jukust í 170 milljónir dollara, en þar af voru tekjur á öðrum fjórðungi 145 milljónir dala. Aðlöguð EBITDA-framlegð á fyrri árshelmingi var 64 milljónir dala, en hún var neikvæð um 147 milljónir dala á sama tíma í fyrra. Heildartap á tímabilinu nam þó 153,5 milljónum dala (um 21

...