Velgengni Íslenska liðinu hefur gengið afar vel undanfarna mánuði.
Velgengni Íslenska liðinu hefur gengið afar vel undanfarna mánuði. — Morgunblaðið/Arnþór

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur aldrei verið jafn ofarlega á heimslista FIFA sem gefinn var út í gærmorgun. Ísland er í 13. sæti á nýja listanum og fer því upp um eitt sæti frá síðasta lista. Í upphafi árs var Ísland í 15. sæti listans.

Ísland vann Þýskaland, 3:0, og Pólland, 1:0, í síðasta verkefni og tryggði sér sæti á lokamóti Evrópumótsins sem fram fer næsta sumar. Ísland fór lægst í 22. sæti listans árið 2018.