Guðlaug Ólafsdóttir fæddist í Reykjavík 16. apríl 1966. Hún lést á heimili sínu 8. ágúst 2024.

Foreldrar hennar voru Eirný Sæmundsdóttir tannsmiður, f. 25 nóvember 1928, d. 11. janúar 2012, og Ólafur Haukur Kristinsson skrifstofumaður, f. 14. mars 1937.

Bróðir hennar sammæðra er Sæmundur Þorbergur Magnússon, f. 14. janúar 1956. Samfeðra systkin: Kristinn Ólafsson, f. 3. janúar 1968, Kári Jacques Ólafsson, f. 29. febrúar 1981, og Marie Birna Ólafsdóttir, f. 22. júlí 1979.

Útför hefur farið fram.

Takk fyrir allt elsku Gulla mín. Þú ert okkar kærasta og besta. Sá það bara fyrst núna. Of seint kannski, en ég sé.

Ég ætla að kveðja þig með orðum Björns Eidsvågs

...