Spánverji Miðjumaðurinn Inaki Rodríguez er kominn til Vestra.
Spánverji Miðjumaðurinn Inaki Rodríguez er kominn til Vestra. — Ljósmynd/Vestri

Knattspyrnudeild Vestra hefur gengið frá samningi við Spánverjann Inaki Rodríguez og mun hann leika með liðinu út tímabilið. Er Rodríguez miðjumaður. Félagaskiptin gengu í gegn í gær, þrátt fyrir að félagaskiptaglugganum hafi verið lokað á þriðjudagskvöld.

Tókst Vestra að ganga frá öllum samningum fyrir gluggalok. Vestri er í 10. sæti Bestu deildarinnar með 14 stig og aðeins fyrir ofan fallsæti á markatölu.