Anton Ari Einarsson markvörður Breiðabliks var besti leikmaður 16. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu að mati Morgunblaðsins. Anton Ari átti mjög góðan leik og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína þegar Breiðablik hafði betur gegn Val, 2:0, á Hlíðarenda fimmtudaginn 15. ágúst. »36