Málverkasýning Sossu í Gallerí Fold sem ber titilinn Umbreyting var opnuð síðastliðinn fimmtudag. Sossa, Margrét Soffía Björnsdóttir, sýnir þar nýleg verk sem unnin eru hér heima og í Danmörku
Málverk Sossa er sögð sjálfri sér lík en feta þó nýjar leiðir í verkunum.
Málverk Sossa er sögð sjálfri sér lík en feta þó nýjar leiðir í verkunum.

Málverkasýning Sossu í Gallerí Fold sem ber titilinn Umbreyting var opnuð síðastliðinn fimmtudag. Sossa, Margrét Soffía Björnsdóttir, sýnir þar nýleg verk sem unnin eru hér heima og í Danmörku. „Í þeim sést að Sossa er sjálfri sér lík en fetar þó nýjar leiðir þar sem ólga og umbreytingar eru áberandi. Sýningin markar ákveðin tímamót, en Sossa fagnaði sjötugsafmæli fyrr á þessu ári en á sama tíma hefur hún með handbragði sínu og litameðferð leyst úr læðingi nýja krafta,“ eins og það er orðað í tilkynningu.

Sossa hefur unnið að list sinni beggja vegna Atlantshafsins auk þess að starfa hér á landi. Sossa sýnir reglulega á vinnustofu sinni í Keflavík en síðast sýndi hún ný málverk í Gallerí Fold árið 2021 og í Danmörku árið eftir. Á þeim sýningum mátti greinilega sjá þá leit og þreifingar sem nú hafa leitt til þeirra umbreytinga sem birtast á nýju sýningunni, segir jafnframt í tilkynningunni.