30 ára Bjartur ólst upp að mestu í Mosfellsbæ en býr í Grafarholti. Hann er matreiðslumaður að mennt og er rekstrarstjóri eldhúss hjá hádegisþjónustunni Krydd og kavíar. Áhugamálin eru að vera með fjöskyldu og vinum og elda framandi mat.


Fjölskylda Maki Bjarts er Kristín Birta Ólafsdóttir, f. 1998, matreiðslumeistari að mennt og er vaktstjóri á Hótel Reykjavík Grand. Dóttir þeirra er Emma Sól, f. 2021. Foreldrar Bjarts eru Heiða Eiríksdóttir, f. 1975, búsett á Selfossi, og Birkir Bragason, f. 1968, búsettur í Noregi.