Hvítur á leik
Hvítur á leik

1. d4 Rf6 2. Rc3 d5 3. Bf4 e6 4. Rb5 Ra6 5. e3 Bb4+ 6. c3 Be7 7. a4 0-0 8. Bd3 c6 9. Ra3 c5 10. Rb5 c4 11. Bc2 Bd7 12. Rf3 Bxb5 13. axb5 Rb8 14. Db1 Db6 15. g4 Re4 16. Re5 f5 17. gxf5 exf5 18. Hg1 Kh8 19. Bxe4 fxe4 20. Dd1 De6 21. Dh5 Rd7

Staðan kom upp á opnu alþjóðlegu móti sem fram fór í Sant Ferran de ses Roques á Spáni í apríl síðastliðnum. Tripathi Adarsh (2.304) hafði hvítt gegn Alexöndru Botez (1.970) frá Kanada. 22. Rg6+ Kg8 23. Dxd5! Kf7 hvítur hefði orðið manni yfir eftir 23. … Dxd5 24. Rxe7+. 24. Rh8+!! afar skemmtilegur leikur. 24. … Hxh8 25. Hxg7+! Kxg7 26. Dxe6 og svartur gafst upp. Alexandra Botez er önnur Botez-systra en hin heitir Andrea Botez. Þær systur hafa þótt snjallar að koma efni frá sér á netinu og eru vinsælir skákstreymarar. Alexandra tók þátt í Reykjavíkurskákmótinu

...