Jóhann Berg Guðmundsson skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Burnley í ensku B-deildinni í knattspyrnu á tímabilinu þegar liðið vann stórsigur, 5:0, gegn Cardiff í Burnley á laugardaginn. Jóhann kom inn á á 74. mínútu og skoraði undir lokin en Burnley er í efsta sætinu með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.
Arnór Sigurðsson kom inn á hjá Blackburn á 81. mínútu þegar lðið gerði jafntefli gegn Norwich, 2:2, í Norwich en Blackburn er með 4 stig í fjórða sætinu.
Stefán Teitur Þórðarson lék allan leikinn með Preston þegar liðið tapaði fyrir Swansea, 3:0, í Wales en Preston er án stiga í 23 sætinu og því næstneðsta.
Þá var Guðlaugur Victor Pálsson ekki í leikmannahópi Plymouth þegar liðið gerði jafntefli gegn Hull, 1:1, á
...