Ásgerður Hinrikka Annasdóttir fæddist á Ísafirði 21. desember 1946. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 8. ágúst 2024.

Foreldrar hennar voru Annas Jónsson Kristmundsson, f. 25. október 1911, d. 15. september 1992, og Friðgerður Guðný Guðmundsdóttir, f. 1. febrúar 1919, d. 24. júní 2009. Systkini Ásgerðar Hinrikku eru Steinunn Sigríður Lovísa, f. 1941, Vilhelm Sigurður, f. 1945, d. 2009, Bergþóra, f. 1950, Guðný Anna, f. 1951, d. 1952, Sigmundur Jón, f. 1953, drengur, f. 1954, d. 1954, Guðný Anna, f. 1958, og Dagný, f. 1961.

Hinn 30. desember 1967 kvæntist Ásgerður Hinrikka Ómari Guðbrandi Ellertssyni, f. á Ísafirði 12. október 1947. Foreldrar hans voru Ellert Finnbogi Eiríksson, f. 17. október 1911, d. 13. ágúst 1983, og Ísól Fanney Guðbrandsdóttir, f. 11. mars 1912, d. 7. desember 2003.

Börn

...