Laxalón Engin starfsemi hefur verið í fiskeldisstöðinni síðustu misseri.
Laxalón Engin starfsemi hefur verið í fiskeldisstöðinni síðustu misseri. — Morgunblaðið/Eggert

Vestfirska fiskeldisfyrirtækið Hábrún/ÍS-47 er með áform um að hefja að nýju eldi á regnbogasilungi í fiskeldisstöðinni Laxalóni í Reykjavík.

Umhverfisstofnun felldi í byrjun ársins úr gildi starfsleyfi félagsins Silungs-eldisstöðvar ehf. sem var þar síðast með starfsemi en félagið var úrskurðað gjaldþrota í lok ársins 2021. Rekstrarleyfi, sem Matvælastofnun gefur út, rann út á síðasta ári.

Gísli Jón Kristjánsson, einn hluthafa í Hábrún/ÍS-47, sagði við Morgunblaðið, að samið hafi verið um kaup á rekstrinum í Laxalóni og verið sé að vinna að því að fá endurnýjuð starfsleyfi og rekstrarleyfi fyrir stöðina. Hugmyndin væri að starfrækja stöðina áfram ef leyfi fáist. » 2