Saurbær Hallgrímskirkja var reist til minningar um sálmaskáldið.
Saurbær Hallgrímskirkja var reist til minningar um sálmaskáldið. — Morgunblaðið/Ómar

Í tilefni af 350. ártíð sálmaskáldsins Hallgríms Péturssonar verður afhjúpaður minningarsteinn um Hallgrím og konu hans Guðríði Símonardóttur á leiði Hallgríms í Saurbæjarkirkjugarði í Hvalfirði í dag, þriðjudaginn 20. ágúst, klukkan 17.

Fram kemur á vef þjóðkirkjunnar að Guðmundur Rafn Sigurðsson, fráfarandi framkvæmdastjóri kirkjugarðaráðs, hafi stýrt verkefninu. Steininn gerði Þór Sigmundsson steinsmiður.

Áletrun á steininum er gerð samkvæmt tillögu sr. Karls Sigurbjörnssonar, fyrrverandi biskups Íslands. Áletrunina teiknaði Gunnar Karlsson.

Hollvinafélag Hallgrímskirkju í Saurbæ safnaði styrkjum sem standa undir öllum kostnaði við gerð steinsins og við flutning gamla steinsins af leiði Hallgríms inn í kirkjuna þar sem honum hefur verið fundinn staður til

...