Mosfellsbær Aron Jóhannsson (nr. 7) skoraði sigurmarkið í gærkvöldi.
Mosfellsbær Aron Jóhannsson (nr. 7) skoraði sigurmarkið í gærkvöldi. — Morgunblaðið/Eggert

Afturelding vann sterkan heimasigur á Þrótti úr Reykjavík, 1:0, þegar liðin mættust í 18. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í Mosfellsbæ í gærkvöld.

Afturelding er áfram í sjötta sæti deildarinnar en nú með 27 stig, einu stigi á eftir ÍR og Njarðvík í sætunum fyrir ofan. Þróttur heldur kyrru fyrir í sjöunda sæti með 23 stig.

Sigurmark Aftureldingar kom eftir aðeins sjö mínútna leik og það skoraði Aron Jóhannsson.