Stéttarfélagið Sameyki hefur fengið ábendingar frá starfsmönnum Reykjavíkurborgar um að þeir hafi ekki fengið orlof greitt aftur í tímann. Þetta staðfestir Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis sem segir þessi mál til skoðunar
Orlofsgreiðslur Formaður Sameykis segir að komið sé fordæmi fyrir því að orlof fyrnist ekki hjá Reykjavíkurborg og félagið muni taka á því.
Orlofsgreiðslur Formaður Sameykis segir að komið sé fordæmi fyrir því að orlof fyrnist ekki hjá Reykjavíkurborg og félagið muni taka á því. — Morgunblaðið/Ómar

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Stéttarfélagið Sameyki hefur fengið ábendingar frá starfsmönnum Reykjavíkurborgar um að þeir hafi ekki fengið orlof greitt aftur í tímann. Þetta staðfestir Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis sem segir þessi mál til skoðunar.

„Við höfum fengið ábendingar um að orlofsinneign hafi horfið út úr kerfinu. Við erum að vinna með þær og erum rétt að hefja þá vinnu. Við erum ekki komin lengra en að fá staðfestingu okkar félagsmanna á að slíkt hafi átt sér stað

...