— Morgunblaðið/KHJ

Bandarísku hafrannsóknaskipin USNS Marie Tharp (t.v.) og USNS Pathfinder lágu í gær við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn. Skipin eru á vegum sjóhersins og sérstaklega búin tækjum til að rannsaka, mynda og kortleggja hafsbotninn með afar nákvæmum hætti. Gögnin eru svo meðal annars nýtt af kafbátum Bandaríkjahers.

Pathfinder komst í heimsfréttirnar í febrúar 2023 þegar kínverskur njósnabelgur var skotinn niður við strendur Bandaríkjanna eftir að hafa svifið óboðinn inn í lofthelgi landsins. Var Pathfinder þá í hópi þeirra herskipa sem send voru til að tryggja hafsvæðið sem belgurinn og tæknibúnaður hans féllu í og endurheimta brakið. khj@mbl.is