Breiðablik færði sér tap Víkings úr Reykjavík í nyt og jafnaði topplið Bestu deildar karla í knattspyrnu að stigum með því að leggja Fram að velli, 3:1, í 19. umferðinni í gærkvöldi. Víkingur tapaði á heimavelli fyrir ÍA, 1:2, en heldur toppsætinu með ögn betri markatölu en Breiðablik.

FH og Valur áttust þá við í Kaplakrika og skildu jöfn, 2:2, þar sem þrjú af fjórum mörkum leiksins komu undir lokin, þar af tvö í uppbótartíma. » 26