Páll Ólafsson fæddist í Reykjavík 8. febrúar 1966. Hann lést 5. ágúst 2024.

Foreldrar hans eru Sigríður Auður Þórðardóttir, látin, og Ólafur Pálsson. Páll átti þrjú hálfsystkini samfeðra: Hákon Ólafsson (látinn), Guðrún Sóley Maurer og Sigurrós Guðríðardóttir.

Páll kvæntist Sigþrúði Sigurþórsdóttur 15. nóvember 1994 eftir fimm ára sambúð. Þau eiga soninn Heimi, f. 13. janúar 1993. Foreldrar Sigþrúðar voru Sigurþór Ellertsson og Sigurborg Bragadóttir sem eru látin. Páll var menntaður prentsmiður en vann mestmegnis við grafíska hönnunn, hjá Korpus, lengst hjá Skífunni og var síðan framleiðslustjóri hjá Studio Sýrlandi og opnaði síðan sitt eigið fyrirtæki, Pall ehf., 2018 og vann við hlið föður síns í ÓP útgafu til andláts.
Páll var virkur í hinum ýmsu félagsmálum, s.s. Iðnnemasambandinu, golfklúbbnum Dalbúa og stúku Þorgeirs í

...