Þættirnir A Good Girl's Guide to Murder voru nýlega frumsýndir á streymisveitunni Netflix en um er að ræða sex þátta seríu byggða á samnefndri metsölubók Holly Jackson
Hetja Myers í hlutverki hinnar hugrökku Pip.
Hetja Myers í hlutverki hinnar hugrökku Pip.

Anna Rún Frímannsdóttir

Þættirnir A Good Girl's Guide to Murder voru nýlega frumsýndir á streymisveitunni Netflix en um er að ræða sex þátta seríu byggða á samnefndri metsölubók Holly Jackson. Þar segir frá hinni ungu og hugrökku Pip Fitz-Amobi, Pippu, leikin af Emmu Myers, sem ákveður dag einn að rannsaka fimm ára gamalt morðmál á 17 ára gamalli stúlku, Andie Bell, sem var myrt í heimabæ Pippu á Englandi. Pippa er þess fullviss að lögreglan hafi handsamað rangan mann á sínum tíma og leggur því allt í sölurnar svo sannleikurinn líti loks dagsins ljós. Athygli hefur vakið að hin 22 ára gamla Myers, sem fædd er í Bandaríkjunum og þekktust fyrir hlutverk sitt sem Enid Sinclair í þáttunum Wednesday, lagði það á sig að læra breskan hreim fyrir hlutverkið á einungis tveimur vikum.

...