Helgi Jóhannesson
Helgi Jóhannesson

Bæjarstjórn Akraness sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem hún harmaði þá stöðu sem komin væri upp í málefnum Skagans 3X, en ljóst var fyrir helgi að ekki myndi takast að selja eignir þrotabúsins í heilu lagi.

Sagði m.a. í yfirlýsingu bæjarstjórnar að hún hefði lagt höfuðáherslu á að fyrirtækið yrði endurreist á Akranesi, með hagsmuni starfsmanna og bæjarfélagsins í forgrunni. Þá hefði bæjarstjórn ekki gefið upp alla von um að endurreisa mætti starfsemina á Akranesi, og lýsti hún yfir vilja sínum til að koma beint að samningum með þeim ráðum sem sveitarfélaginu væru fær.

Helgi Jóhannesson, skiptastjóri Skagans 3X, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að ýmsir hafi haft samband við sig um helgina og lýst áhuga á einstökum eignum þrotabúsins. » 4