Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum átján ára og yngri gerði í gær jafntefli við Egyptaland á heimsmeistaramótinu í Chuzhou í Kína. Lokatölur voru 20:20. Lokakafli leiksins var æsispennandi en Ísland jafnaði metin í 20:20 þegar…
Fjögur Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir skoraði fjögur mörk í gær.
Fjögur Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir skoraði fjögur mörk í gær. — Ljósmynd/IHF

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum átján ára og yngri gerði í gær jafntefli við Egyptaland á heimsmeistaramótinu í Chuzhou í Kína. Lokatölur voru 20:20. Lokakafli leiksins var æsispennandi en Ísland jafnaði metin í 20:20 þegar mínúta var eftir af leiknum, en hvorugu liðinu tókst að skora sigurmark. Dagmar Guðrún Pálsdóttir var markahæst hjá Íslandi með átta mörk og Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir gerði fjögur.