Danski knattspyrnumaðurinn Christian Eriksen gæti snúið aftur til hollenska félagsins Ajax frá Manchester United. Enskir miðlar segja Eriksen vera falan fyrir fimm milljónir punda en hann er 32 ára gamall miðjumaður. Eriksen byrjaði aðeins 12 leiki hjá United í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en hann hóf feril sinn hjá Ajax áður en hann gekk í raðir Tottenham árið 2013. Eriksen á að baki 134 landsleiki fyrir Danmörku þar sem hann hefur skorað 42 mörk.