Pétur Rúnar Guðmundsson fæddist 22. febrúar 1948 í Reykjavík. Hann lést 9. ágúst 2024.

Pétur var sonur hjónanna Guðmundar Breiðfjörð Péturssonar, skipstjóra og stýrimanns, f. 1914, d. 1980, og Lydíu Guðmundsdóttur, húsmóður, f. 1920, d. 1993. Pétur var þriðji í röð fjögurra systkina. Hin eru Hilda Gunnvör, f. 1940, Þórhildur, f. 1943, og Hafsteinn Örn, f. 1957.

Hinn 26. apríl 1969 kvæntist Pétur Sólveigu Ólöfu Jónsdóttur, f. 19. febrúar 1949. Foreldrar Sólveigar voru Ásdís Sigfúsdóttir, f. 1919, d. 2012, og Jón M. Guðmundsson, f. 1920, d. 2009. Börn Péturs og Sólveigar eru: 1) Guðmundur Hrannar, f. 1967, maki Elín Bubba Gunnarsdóttir, f. 1970, börn þeirra eru Eva Sólveig, f. 1991, Ásdís Eir, f. 1993, og Erla Margrét, f. 2004. Maki Ásdísar Eirar er Hrannar Heimisson, f. 1993, börn þeirra eru Kári, f. 2018, og Saga, f. 2021. 2) Birgir Tjörvi,

...