Sádi-Arabía Jóhann Berg gæti verið á förum til Al-Orobah.
Sádi-Arabía Jóhann Berg gæti verið á förum til Al-Orobah. — Ljósmynd/Burnley

Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er á leið til sádiarabíska félagsins Al-Orobah, sem leikur í efstu deild þar í landi. 443.is greinir frá því að Jóhann sé þegar floginn til Sádi-Arabíu og muni skrifa undir samning við Al-Orobah. Liðið hafnaði í öðru sæti í B-deildinni á síðasta tímabili og leikur því á meðal þeirra bestu á komandi tímabili. Tíðindin eru óvænt en Jóhann Berg skrifaði undir nýjan samning við Burnley fyrr í sumar.