Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, býst við betri afkomu.
Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, býst við betri afkomu. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Tekjur Eimskips á öðrum ársfjórðungi þessa árs námu tæplega 210 milljónum evra og jukust lítillega á milli ára. Kostnaður félagsins nam rúmlega 186 milljónum evra og jókst um 6% á milli ára, sem að sögn félagsins má að mestu rekja til hærri kostnaðar við kaup á þjónustu þriðja aðila. Hagnaður félagsins fyrir tímabilið nam um 8 milljónum evra, samanborið við 17 milljónir evra á sama tíma í fyrra og dróst því saman um rúm 53%. Þó er rétt að taka fram að sama tímabil í fyrra var mjög sterkur fjórðungur í rekstri félagsins.

Þegar horft er til fyrstu sex mánaða ársins námu tekjur Eimskips um 406 milljónum evra og lækkuðu um 4,4% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 368 milljónum evra og jókst um tæpar 10 milljónir evra á milli ára. Hagnaður eftir skatta nam 8,4 milljónum evra, samanborið við 29,5 milljóna evra hagnað á sama tímabili í fyrra.

Vilhelm Már

...