Landsliðsmaður Hákon Arnar er í stóru hlutverki hjá Lille.
Landsliðsmaður Hákon Arnar er í stóru hlutverki hjá Lille. — AFP/Sameer Al-Doumy

Landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson og liðsfélagar hans í Lille eru í góðri stöðu eftir sigur á Slavia Prag frá Tékklandi, 2:0, í umspili um sæti í Meistaradeildinni í fótbolta í haust. Liðin mættust í Frakklandi en seinni leikurinn fer fram í Prag eftir viku. Hákon Arnar lagði upp fyrra mark Lille á Jonathan David á 52. mínútu leiksins. Edon Zhegrova bætti við öðru marki Lille á 77. mínútu eftir sendingu frá Jonathan David.