Heimkaup hafa selt rafrænar kennslubækur fyrir háskólastigið.
Heimkaup hafa selt rafrænar kennslubækur fyrir háskólastigið. — Morgunblaðið/Hákon

Sigurður Pálsson, verkefnisstjóri rafrænna kennslubóka fyrir háskólastigið hjá Heimkaupum, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að nýir samningar við birgja þýði að Heimkaup geti nú boðið rafræn kennslugögn á 15-20% lægra verði en á sama tíma í fyrra. Þá hafi leiguvalkostum verið fjölgað umtalsvert í sömu samningum. Verðlækkunin endurspeglast líka í leigutitlunum að sögn Sigurðar.

Hann segir að Heimkaup bjóði nemendum háskóla að kaupa rafrænar bækur en einnig að leigja til lengri og styttri tíma. Sumar háskólabækurnar nýtast framhaldsskólanemendum sömuleiðis í ákveðnum fögum. Sem dæmi er hægt að kaupa bók sem kostar um 15.000 kr. prentuð á 7.500 kr. í rafrænu formi. Þá er hægt að leigja hana á rúmar fimm þúsund krónur í sex mánuði.

„Eftir því sem bókin er með styttri líftíma er hún ódýrari,“ segir Sigurður. Á móti kemur að nemendur

...