Rósa Guðbjartsdóttir
Rósa Guðbjartsdóttir

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar fagnar sáttmálanum og segir að með honum sé höfuðborgarsvæðið „almennilega að komast á blað“. Hún gleðst sérstaklega yfir fyrirhugaðri samgöngubót á Reykjanesbraut.

„Þetta er í rauninni bara mjög stór stund að við séum að klára þetta. Loksins er þetta svæði, höfuðborgarsvæðið, að fá einhverja framtíðaráætlun í samgöngumálum.“