U23 Karen María Sigurgeirsdóttir á að baki tvo landsleiki með U23.
U23 Karen María Sigurgeirsdóttir á að baki tvo landsleiki með U23. — Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Íslenska U23 ára landslið kvenna í knattspyrnu mun mæta jafnöldrum sínum frá Finnlandi í tveimur vináttuleikjum í lok október. Leikirnir fara báðir fram í Finnlandi, dagana 24. og 27. október, en ekki liggur fyrir að svo stöddu hvar þeir verða leiknir. U23 ára landsliðið lék fjóra vináttulandsleiki á síðasta ári, tvo gegn Danmörku og tvo gegn Marokkó. Báðir leikirnir gegn Dönum töpuðust en Ísland vann fyrri leikinn gegn Marokkó og þeim síðari lauk með jafntefli.