Vestmannaeyingurinn Jón Berg Halldórsson í Hafnarfirði kynntist harmonikuleik þegar hann var 17 ára, eignaðist þá fyrstu nikkuna, lærði að spila 35 árum síðar og er með föst verkefni í spilamennskunni
Skemmtikraftur Jón Berg Halldórsson spilar reglulega á nikkuna.
Skemmtikraftur Jón Berg Halldórsson spilar reglulega á nikkuna. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Vestmannaeyingurinn Jón Berg Halldórsson í Hafnarfirði kynntist harmonikuleik þegar hann var 17 ára, eignaðist þá fyrstu nikkuna, lærði að spila 35 árum síðar og er með föst verkefni í spilamennskunni. „Við skemmtun gamla fólkinu reglulega,“ segir sjómaðurinn síkáti á 90. aldursári. Með honum spilar og syngur fólk, sem flest er um nírætt. „Saxófónleikarinn er 94 ára og elstur en trommarinn er aðeins 82 ára, krakkinn í hópnum.“

Jón hefur haldið utan um DAS-bandið undanfarin ár, tók við af Böðvari Magnússyni, sem sá um það frá byrjun, en það hefur spilað fyrir dansi á Hrafnistu í Hafnarfirði á föstudögum frá aldamótum. Harmonikufélagarnir eru með honum í sama hlutverki á Grund í Reykjavík þegar böll eru haldin þar á fimmtudögum, næst 26. september.

...