Tappi Ein af myndum Hermanns Vierkes úr tappamyndaröðinni.
Tappi Ein af myndum Hermanns Vierkes úr tappamyndaröðinni.

Ljósmyndararnir Jutta Biesemann og Hermann Vierke opna sýningu í Deiglunni á Akureyri en hún verður aðeins opin um helgina, 24.-25. ágúst, frá kl. 14-17. Þau hafa dvalið í gestavinnustofu á vegum Gilfélagsins.

Jutta Biesemann sýnir meðal annars kyrralífsmyndir af munum sem hún fann í gestavinnustofunni og í verslun hér á Akureyri með notaða muni og bjó til uppstillingar fyrir ljósmyndunina. Hermann Vierke sýnir síðan meðal annars myndir af flöskutöppum þeim sem hann fann fyrir utan húsið sem og land- og sjávarmyndir.