Staðan kom upp á opnu móti sem fram fór í Lignano Sabbiadoro á Ítalíu í ágúst 2023. Króatíski stórmeistarinn Ivan Zaja (2.421) hafði hvítt gegn heimamanninum Christian Palozza (2.244)
Hvítur á leik
Hvítur á leik

Staðan kom upp á opnu móti sem fram fór í Lignano Sabbiadoro á Ítalíu í ágúst 2023. Króatíski stórmeistarinn Ivan Zaja (2.421) hafði hvítt gegn heimamanninum Christian Palozza (2.244). 25. Rxf6+! gxf6 26. Hg4+ Rg7 svartur hefði einnig tapað eftir aðra leiki. 27. Hxg7+! Kxg7 28. Dg6+ Kf8 29. Dxf6+ Kg8 30. Dg6+ Kh8 31. Dxh6+ Kg8 32. Dg6+ Kh8 33. Rg5! sókn hvíts leiðir núna til liðsvinnings. 33. … He7 34. Df6+ Hg7 35. h6 Dc7 36. hxg7+ Dxg7 37. Df5 b6 38. Hh1+ Dh7 39. Dxh7 mát. Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2.366) tekur þessa dagana þátt í þessu sama ítalska móti en því lýkur á morgun, föstudaginn 23. ágúst. Nánari upplýsingar um gang mála á mótinu má finna á skak.is en þar má einnig nálgast upplýsingar um önnur skákmót, svo sem eins og undanrásir þær sem fram fara nk. sunnudag á Íslandsmótinu í netskák.