— Skjáskot af Twitter

Ein­hver fram­taks­sam­ur aðili ákvað að taka hluti í eig­in hend­ur og setja svo­kallaða Hollywood-stjörnu fyr­ir há­hyrn­ing­inn Keikó á stétt­ina á Aust­ur­velli.

Stefán Rafn upp­lýs­inga­full­trúi Seðlabank­ans vakti at­hygli á þessu á X-síðu sinni þar sem hann sýn­ir einnig mynd af stjörn­unni. Þar varp­ar Stefán einnig fram áhuga­verðri hug­mynd um að þessu verði fylgt eft­ir með ár­leg­um stjörn­um fyr­ir önn­ur fræg dýr. Stjarn­an og hug­mynd­in góða voru til umræðu í morg­unþætt­in­um Ísland vakn­ar í gærmorg­un en nánar er fjallað um málið á K100.is.