Víkingur úr Reykjavík fær kjörið tækifæri til þess að tryggja sér sæti í nýrri deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu karla þegar liðið mætir UE Santa Coloma frá Andorra í fjórðu og síðustu umferð undankeppninnar. Fyrri leikurinn fer fram á Víkingsvelli klukkan 18 í kvöld og mætast liðin aftur eftir eina viku í Andorra. Víkingur freistar þess að feta í fótspor Breiðabliks sem komst í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar á síðasta tímabili. » 63