„Við erum ekki búin að gefa út dagsetninguna ennþá en við erum svona að hnýta síðustu endana í þessu öllu og erum bara í prófunum þessa dagana,“ segir Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaupa í samtali við Morgunblaðið um hvenær vefverslun Hagkaupa með áfengi fer í loftið
Vefverslun Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaupa.
Vefverslun Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaupa. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Sæþór Már Hinriksson

saethor@mbl.is

„Við erum ekki búin að gefa út dagsetninguna ennþá en við erum svona að hnýta síðustu endana í þessu öllu og erum bara í prófunum þessa dagana,“ segir Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaupa í samtali við Morgunblaðið um hvenær vefverslun Hagkaupa með áfengi fer í loftið. „Ég er aðeins búinn að brenna mig á því að vera að segja einhverjar dagsetningar þannig að ég er eiginlega hættur því. En það alla vegana styttist,“ segir Sigurður og bætir við að vefsíðan sé tilbúin en sé í villuprófunum og úttektum hjá netöryggisfyrirtækinu Syndis.

...