Manuel Neuer
Manuel Neuer

Manuel Neuer, fyrirliði knattspyrnuliðs Bayern München í Þýskalandi, hefur lagt landsliðsskóna á hilluna. Markvörðurinn tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í gær en Neuer, sem er 38 ára gamall, hefur verið aðalmarkvörður Þýskalands, nánast samfleytt frá árinu 2009, enda einn besti markvörður sögunnar. Hann varð heimsmeistari með Þjóðverjum árið 2014 í Brasilíu og þá vann hann til bronsverðlauna með liðinu á HM 2010 í Suður-Afríku. Alls lék hann 124 A-landsleiki fyrir Þýskaland en Neuer er þriðji leikmaðurinn sem leggur landsliðsskóna á hilluna eftir nýliðið Evrópumót því bæði Toni Kroos og Ilkay Gündogan lögðu gerðu hið sama á dögunum. Þjóðverjar duttu út fyrir Spáni í átta liða úrslitum Evrópumótsins í Þýskalandi í sumar eftir framlengdan leik. Spánverjar urðu síðan Evrópumeistarar.