— Morgunblaðið/Eggert

Framkvæmdir voru í fullum gangi í gær við nýbyggingu Arnarnesvegar frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbrautinni, en vegalagningin er ein af þeim sem kveðið var á um í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins árið 2019. Framkvæmdirnar hófust í fyrra, en þeim á að ljúka á þarnæsta ári. Uppfærður samgöngusáttmáli var undirritaður í gær við formlega athöfn í Salnum í Kópavogi. » 4