Jón Loftsson fæddist á Hólmavík 17. desember 1927. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Hólmavík, 11. ágúst 2024.

Foreldrar hans voru Loftur Bjarnason, d. 1956, og Helga Guðbjörg Jónsdóttir, d. 1981. Alsystkini Jóns eru Gróa, Þórdís, Sigvaldi, Ingimundur Tryggvi, Guðjón og Karl Elínías. Karl er einn eftirlifandi systkinanna. Hálfsystkini eru Gísli, Aðalheiður, Björnstjerne og Gestur. Öll látin.

Eiginkona Jóns var Stefanía Guðrún Andrésdóttir, f. 13. febrúar 1930, d. 19. júní 2021. Þau eignuðust þrjú börn: 1. Hrönn, f. 5.11. 1952, maki Halldór Sigurjónsson. Börn þeirra eru: a) Stefanía Guðrún, maki hennar er Snorri Árnason, börn þeirra eru Halldór Þór, Árni og Katrín Aagot. b) Halldór Hrannar, maki hans er Inga Rósa Sigurðardóttir, börn þeirra eru Sunneva Hrönn, Sigurður Ingi og Hafdís Rut. c) Svandís Helga, maki hennar er Oliver

...