Valdís er búsett á Skaganum ásamt eiginmanni sínum, Ingimar Elí Hlynssyni, og sonum þeirra tveimur. Hún starfar sem tannlæknir á Akranesi og er stundakennari við Tannlæknadeild Háskóla Íslands. Valdís segist strax hafa tekið eftir því þegar hún…
Valdís Marselía Þórðardóttir tannlæknir.
Valdís Marselía Þórðardóttir tannlæknir.

Valdís er búsett á Skaganum ásamt eiginmanni sínum, Ingimar Elí Hlynssyni, og sonum þeirra tveimur. Hún starfar sem tannlæknir á Akranesi og er stundakennari við Tannlæknadeild Háskóla Íslands.

Valdís segist strax hafa tekið eftir því þegar hún byrjaði í tannlæknisfræðinni í HÍ að það væri vöntun á almennri vitneskju í samfélaginu þegar kemur að tannheilsu.

„Ég gat jú sannarlega frætt fólk sem sat hjá mér í stólnum, en mig vantaði að koma ýmsum upplýsingum lengra. Öll erum við að fylgja fólki á netinu sem nær að hafa áhrif á okkur – mér datt því í hug að byrja sjálf að fræða og hafa áhrif í gegnum þessa miðla. Ég byrjaði fyrst á TikTok og fór svo líka á Instagram þar sem ég veit að þetta er ekki endilega sama fólkið sem ég er að ná til á þessum tveimur miðlum,“ segir Valdís.

Sýrumæling vinsælla drykkja sló í gegn

...